Snúðu andlitinu í átt til sólar og þá sérðu ekki skuggana.
Eina sem virkaði á mig
16.11.2007 08:14:46 / Nikký

myndir af ársatíðinni

Birgitta, litla skottið okkar er búin að setja inn fullt af myndum af ársatíðinni. Það eru helllings myndir af mér í lokin Have fun! http://www.123.is/bridzan/default.aspx?page=albums 

» 14 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 22:57:50 / Nikký

Djamm

Ég er að fara á djammið á laugardaginn, ætlar einhver að hitta mig?

 Ég er að fara í grímubúningspartý og þemað er að vera eitthvað sem mér finnst sexý! Hlakka til að sjá í hverju ég enda.


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 22:48:28 / Nikký

haha

haha, ég er alveg að fara mynda smá gremju yfir því að það sé bara ein sem hefur óskað mér til hamingju með 2ja ára afmælið mitt, fyndinn er maður haha. Svona er lífið ljúft og yndislegt.

 Fórum í dansinn, gengur illa að finna model sem er laust á virkum dögum, alltof mikil heimavinna ógerð.... samt sit ég hérna bara hamingju söm, södd og sæl og hlakka til jólanna. Hlakka til að vinna í desember og skreyta.

Það er ársatíð í vinnunni minni á laugardaginn, það er einhverskonar hlutverkaleikur. Það kom strákur niðrá sofu í dag í svaka dressi og lét okkur allar fá umslag....ég er Lafði Alwandra og er búin að fá plat eðla til að nota um kvöldið. Leyfi ykkur að fylgjast með.  Síðan erum við stelpurnar í vinnunni búnar plana smá óvænt fyrir yfirmennina okkar.


» 16 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 23:45:43 / Nikký

GSA

Ég er orðin tveggja ára. Búin að vera í 2 ár og nokkra daga í fráhaldi. Aldrei hefði mér dottið í hug að ég gæti verið án þess að éta nammi, skyndibitafæði og allt það drasl lengur en þrjá daga!

Annars er bara stutt í jólin og skólaundirbúnignurinn farinn að gera sig. Jarl búinn að vera í vetrafríi, bara næs hjá okkur.

Erum að horfa á vini... tjátjá.

 

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 22:34:33 / Nikký

Dansinn dansar.

Dansinn gengur vel.  Við fáum alltaf pössun á miðvikudagskvöldum, leiðumst útí bíl og förum að dansa saman! Við erum að dansa vals, cha cha cha, foxtrot, djæf, kvikstep, samba, ræl og ég held að ég sé ekki að gleyma neinum. Ferlega gaman hjá okkur.

Fórum í sunnudagaskólann í morgum. Elduðum okkur gómsætt læri í hádegismat sem var svo kvöldmatur líka. Læri með sultuðum lauk, appelsín - rósmarín gulrótum, hvítlaukssteiktum sveppum og soðnu rósakáli og svo ferkst salat! Ég er farin að gera mér hveitikímsköku með sýrópi, rosalega góð, set svo ofan á kanilsteikt epli sem ég steiki uppúr smjöri, sýrópi og kanilstrásætu og helli svo yfir það skyri og drykkjarskyri sem ég er búin að hræra saman ásamt sýrópi mínu. Svakalegur desert!

Það er vetrarfrí hjá stráknum í vikunni og framyfir helgi, þannig að það er að koma smá ró inná heimilið í miðri viku. Foreldraviðtal á miðvikudaginn, hlakka bara til. Honum gengur alveg svakalega vel að mínu mati ;o)

Jæja, snúllur, við Alli ætlum að halda smá áfram að læra. Hann er eitthvað að púsla saman nýja prentaranum okkur og sýna mér eitthvað..... knús knús.

P.S Vill einhverj klippingu eftir hádegi á þriðjudaginn???


» 15 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 08:59:36 / Nikký

Skorradal

Ég var í bústað um helgina. Fór ásamt dýrmætustum konum í mínu lífi. Helgin var meiriháttar, við borðuðum góðan mat og héldum fundi inná milli. Ég var í skemmtinefnd og tel mig hafa staðið mig bara nokkuð vel með heimabúnni spurningarkeppni sem var á laugardagskvöldinu. Rosalega gott að gera akurat ekki neitt heila helgi og slappa af.

Það er kominn seinnihluti í náminu, undirbúningur fyrir prófin byrjuð. Þarf að fara kýla almennilega á þetta og rúlla yfir þetta!

Skrítið að horfa á Zúúber í sjónvarpinu.

Meira seinna, tjá.


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 20:46:02 / Nikký

tásublogg

Ég er orðin góð í tásunni, þetta er ekkert smá aulalegt! Er ennþá á sýklalyfjum og tásan er minni en marin, spes. Ég get alveg labbað og farið í skó, finn pínu ponsu fyrir en ekkert til að tala um einu sinni!

Helgin fín, framkvæmdaglöð að vanda, skelltum upp tveim kommóðum í herbergið hans og einni hillu. Hann fór í barnaafmæliá laugardaginn, við öll í sunnudagaskólann, horfðum á vini, skúruðum og þvoðum þvott, skiptum á rúmunum og viðruðum sængurnar, láum í leti, fórum í bað, elduðum önd, folald, vöfflur, pönnsur, lituðu, spiluðum, teiknuðum og margt í þessum gír, fjölskyldulegt.

Mamma kom til mín á föstudaginn og fór í skólann hans,  ég með fótinn uppí loftið! Alli er búinn að þurfa að fara með hann í skólann á morgnanna því ég gat ekki labbað, jemeinn eini... En allavega, mamma mín kom með föt að utan handa okkur (ég bað um það;). Fyndið að hver einasta flík smellpassar, á mig og á Jarl. Það er alveg eins og ég hafi mátað þetta í búðinni og keypt sjálf, fyndið!!

Ég er að fara í bústað næstu helgi með ofætunum mínum í GSA. Ég er í skemmtinefnd þannig að ég ætla ekki að missa af skemmtulegustu helgi ever!

Góða nótt og farið snemma að sofa og njótið lífsins, drekkið kalt vatn og andið djúpt inn og brosið! Knús og kram.


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 23:05:43 / Nikký

tási tása

Enginn dans í kvöld! Ég er gjörsamlega að drepast í tánni. Ég er búin að haltra í allan dag, svaf illa síðustu nótt. Tásan mín er rauð og bolgin! Fór á læknavaktina áðan og er með sýkingu í húðinni, hljómar ekki vel en það sést ekki neitt, bara ógó vont! Ég fékk sýklalyf og á  að finna mun seinni partinn á morgun.
Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég var að labba heim frá lækninum, ég stoppaði fyrir utan blokkina og bara shitturinn! En komst heim og er að fara að horfa á vini með Alla mínum.

Þar hafiði það, ég verð heima á morgun :o)


» 16 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 22:15:34 / Nikký

Ný vika að koma!

Trúi því varla að það sé mánudagur í fyrrmáli!! Helgin er búin að fljúga!!! Ég var að vinna á laugardaginn, klikkað að gera. Það er námskeið niðrá stofu, Alex frá Berlín er að klippa og gera margt flott. Hann og Harpa litari voru með öll modelin á laugardaginn að klippa og lita, rosa gaman. Svo í dag, sunnudag var ég mætt kl 9 að hjálpa til og sat svo á námskeiði til 13 og horfði á nýju línurnar myndast! Svaka gaman.
Við Alli skelltum okkur svo í Ikea og keyptum kommóðu fyrir Jarl og fórum í smá útréttingar. Við Alli erum að leka hérna. Skóli í fyrramái og vinna/námskeið eftir það.

Móðir mín er í útlöndum mér til mikillar ánægju!

Góða nótt og njótið næstu viku til botns!!

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 09:17:10 / Nikký

Próftaflan komin

Próftaflan komin í hús og ég er að frjósa á puttunum! Ég var heima í gær því að einn kennarinn var veikur, ég náði að læra helling.... lærði og lærði fyrtsu 5 tíma dagsins og svo varð eitthvað lítið úr náminu hjá mér seinnipartinn. Hitti magnað fólk í gærkvöldi og hélt á gullmola! Í morgun fékk ég yndislegt sms sem ástæða fyrir því að ég er heima, veikur kennari...annar. Ég fór með hann í skólann og eldaði mér pönnsu! Kíkti í tölvuna og skoðaði próftöfluna. Ég er búin í prófum þriðjudaginn 11. des það vantar að vísu eitt fag í töfluna, held að það sé ekki símats, kemur í ljós.  Ég er í 21 einingum og Alli minn í 19 einingum, nóg að gera. Við sitjum hér hlið við hlið öll kvöld með sitt hvora tölvuna og lærum, sætt.

Ætla nýta tímann og skella í vélar og taka til. Svo er það leikfimi og vinna, heim og borða kvöldmat, dans og svo skóli í fyrramáli. Svona á lífið að vera!!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 20:57:34 / Nikký

helgin

Hæ hæ!!

 Ég fór í afmæli til Írisar frænku minnar á laugardaginn, við Alli sko. Það var rosalega gaman, alltof langt síðan ég hef hitt frændfólk mitt. Ég fór í vinnuna kl 9 á laugardagsmorgun og kom heim um fimm og við Alli elduðum okkur góðan mat og fegnum Geir mág til að passa. Á sunnudaginn fórum við öll í sunnudagaskólann, mjög gaman. Þeir fóru eiginlega í sunnudagaskólann og ég var eftir í messu. Svo um kvöldið fór ég á 101 og hitti alla í vinnunni minni og við fórum í Þjóðleikshúsið og sáum Hamskipti. Rosalega flott leikrit!! Þannig var nú helgin, ég náði að læra mjög mikið, eiginlega ótrúlega mikið. Var svo mætt í permanenttíma kl 8 í morgun!

Jæja, ætla að læra mér, tjátjá


» 13 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 19:25:08 / Nikký

Allt eftir áætlun

Helgin gekk vel. Eftir síðasta blogg fór ég að taka til og var búin að taka til í allri íbúðinni og skúra fyrir hádegi á laugadeginum. Eftir hádegismat fór Jarl til tengdó að hjálpa til að týna upp kartöflur, ég fór og klippti Karen frænku en eftir það fórum við Alli í smáralindina að skoða útiföt á strákinn. Birgir Jarl vildi endilega gista þannig að við leyfðum honum það.

Við Alli elduðum okkur foldakjöt með sultuðunn lauk, hvítlaukssveppum, appelsíngulrætum og balsamediksósu með bláberjum, jammí. Ég fór svo á Sólon og hitti þar stelpurnar (myndir á blogginu hennar Helgu). Ég plataði nú Alla að gera eitthvað skemmtilegt fyrst við vorum barnlaus og ég að fara út að hitta stelpurnar þannig að hann fór til Bensa og hitti strákana. Stelpurnar mínar voru ekki beint fyrirmyndar djammara og fór heim klukkan ellefu! Þannig að ég fór á poolstofuna með strákunum og var með þeim allt kvöld, mjög gaman. Alli náði sér í hraðasekt hjá löggunni, við erum ný búin að borga eina, óheppinn.

Á sunnudeginum fórum við öll saman í sunnudagsskólann. Fórum svo í smáralindina og Jarl  mátaði kuldaskó, hjólaskó og kuldagalla, keyptum kuldaskó á hann.  Svo var farið beint heim og haft það kósý, allir fóru bað, allir fóru að læra og margt skemmtilegt :)

Okkur gengur ágætlega að horfa á vini, erum bara nokkuð dugleg!

Ég fór á Aveda litanámskeið á Nordica hoteli allan mánudaginn, gaman að fara á námskeið. 

Fór í skólaleikfimi í dag, er alltaf í íþróttum á þriðjudögum, bara á þriðjudögum sko! Það þíðir að vöðvarnir mínir titra á þriðjudögum og ég með harðsperrum á miðvikudögum í dansinum, öll að koma til og þreytt á fimmtudögum og svo er líkaminn sinn búinn að jafna sig og fær svo sjokk á þriðjudögum, sniðugt plan.


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 08:43:39 / Nikký

Helgarfrí

Góðan daginn!

Byrjaði daginn á því að hlusta á hljóð frá tölvuleik, heyrði það mjög vel og skýrt, fór þá á fætur. Ég fékk mér flóabrodd með kanil "sykri" og jarðaber og bláber. Birgir Jarl var búinn að fá sér morgunmat og fékk smá jarðarber og bláber með mér í desert. Já meira hef ég ekki gert í dag.

Við erum öll í fríi þessa helgina, langt síðan að maður var í fríi á laugardegi. Stefnan er á að læra mjög mikið, helst bara klára allt sama, bjartsýni. Það er mikið búið af sókanum, fatta það ekki alveg, en það eru 5 vikur búnar, 1/3 búinn!! Skólinn gengur vel. Alli er í meistaranum, klárar hann vonandi núna. Þannig að það er nóg að gera hjá okkur. Fórum í dansinn á miðvikudaginn, rosalega gaman!! Ji, ég sé ekki eftir að hafa byrjað á honum og Alli fílar sig í tætlur líka. Svo erum við í sunnudagaskólanum líka, híhí.

Jæja, ætla að setja í vél og setja þurrkarann í gang og kannski ýta við kallinum. Setja uppvöskunarvélina í gang, opna skólabækurnar og hafa gaman af.


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 22:14:38 / Nikký

jólahvað

Takk fyrir góðar kveðjur!

Fórum í sunnnudagaskólann í morgun, ferlega gaman hjá okkur Jarli. Elduðum svo lambalæri í kl 18, svo gamaldags hehe.
Núna er að hefjast ný vika. Erum að byrja í dansinum aftur, hittist bara þannig á að við eigum við vera á foreldranámskeiði í Hólabrekkuskóla þegar fyrsti danstíminn er.

Er með permanentmodel í fyrramáli, svo beint í vinnuna og enda svo á æfingarkvöldi. Góða nótt.


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 27